Menningar- og ferðamálanefnd - 164
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3294
7. júlí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.6. sl.
Svar

Lagt fram. 22.1. 1106052 - Könnun á fjölda ferðamanna til Hafnarfjarðar 2011. Greint frá könnun Rannsóknar og ráðgjafar ferðaþjónustunnar ehf.   22.2. 1105151 - Bjartir dagar og Sjómannadagurinn 2011 Menningar- og ferðamálafulltrúi sagði frá hvernig til tókst. Bjartir dagar tókust vel og var almenn ánægja með hátíðina, eins var um Sjómannadaginn sem var fjölmennari í ár en oft áður. 22.3. 1106054 - Byggðasafn Hafnarfjarðar. Björn Pétursson mætti til fundarins og fór yfir starfsemi safnsins í sumar. Björn greindi frá því að í ár eru engar nýjar sýningar í Pakkhúsinu vegna niðurskurðar og fækkunar á stöðugildum.  Rafmagnssýningin í Gúttó hefur þó verið efld með munum frá Rafheimum í Elliðaárdal. Farið yfir fjárhagsstöðu safnsins og fleira.  Nefndin leggur til við framkvæmdaráð að gerð verði þarfa- og kostnaðargreining á húsnæðiskosti áður en ráðist verður í að leigja út Vesturgötu 8.   22.4. 1008329 - Sókn í atvinnumálum, átakshópur Lögð fram umsögn til samþykktar. Umsögn um heilustengda ferðaþjónustu samþykkt. 22.5. 1105290 - Krýsuvík og menningar- og ferðamálanefnd Grindavíkur, vettvangsferð Rætt um vel heppnaða vettvangsferð nefndarinnar. 22.6. 1106099 - Heimsókn blaðamanna frá Akureyri og Austfjörðum. Menningar- og ferðamálafulltrúi sagði frá kynnisferð til Hafnarfjarðar fyrir blaðamenn úti á landi sem ferðaþjónustuaðilar í bænum stóðu fyrir. 22.7. 1106055 - Bókasafn Hafnarfjarðar. Anna Sigríður Einarsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins, tók á móti nefndinni og fræddi um starfsemi safnsins. Farið yfir starfsemi safnsins en mikil útlánaaukning hefur orðið á safninu síðustu 3 ár.  Frá 2007-2011 er aukning útlána í maímánuði um 35%.  Starfsfólki hefur á sama tíma fækkað.