Kaldakinn 15, skráning á bifreiðageymslu
Kaldakinn 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 368
13. júlí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi samþykkti á fundi sínum þann 4.1.2005 byggingarleyfi fyrir bífreiðageymslu á lóðinni nr. 15 við Köldukinn. Bílageymslan er fullgerð, en síðasta skráða úttekt er á þakvirki 13.10.2005.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags. 24.08.11 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121283 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034258