Endurfjármögnun lána
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1721
19. mars, 2014
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð BÆJH frá 13.mars sl. Gerð grein fyrir endurfjármögnun lána bæjarsjóðs. Fulltrúar HF verðbréfa, ráðgjafar bæjarins við endurfjármögnunina, mættu til fundarins. Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tilboði Íslandsbanka um endurfjármögnum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls, þá Gunnar Axel Axelsson, síðan Rósa Guðbjartsdóttir og lagði fram svohljóðandi tillögu um að vísa málinu til bæjarráðs:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir því að þessum dagskrárlið Endurfjármöngun lána, verði vísað aftur í bæjarráð. Mikilvægt er að 13 ma endurfjármögnun fái eins vandaða og faglega umfjöllun kjörinna fulltrúa og hægt er áður en til afgreiðslu kemur. Óskað er eftir því að í millitíðinni verði lagðar fram mismunandi næmnigreiningar og sviðsmyndir, yfirlit yfir greiðsluflæði miðað við fyrirhugaða lánsfjárhæð, gjaldeyrisgreiningu og tilboð frá öðrum lánastofnunum."

Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við ræðu Rósu Gjuðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd, Rósa Guðbjartsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd.
Lúðvík Geirsson kom einnig að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Lúðvík Geirsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Lúðvík Geirsson kom að stuttri athugasemd, Rósa Guðbjartsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd.
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd, Rósa Guðbjartsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd.

Kristinn Andersen tók þá til máls, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari, Kristinn Andersen svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Kristinn Andsersen svaraði andsvari öðru sinni.
Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við ræðu Kristins Andersen, Kristinn Andersen svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Kristinn Andersen svaraði andsvari öðru sinni.

Helga Ingólfsdóttir tók þessu næst til máls, Gunnar Axel Axelsson koma að andsvari.

Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók síðan til máls, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Helga Ingólfsdóttir kom að stuttri athugasemd.

Sigríður Björk Jónsdóttir tók þessu næst til máls, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari,

Varaforseti Kristinn Andsesen tók við stjórn fundarins.

Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni.

Geir Jónsson tók þá til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari, Geir Jónsson svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Geir Jónsson svaraði andsvari öðru sinni.

Valdimar Svavarson tók þessu næst til máls.

Forseti Margrét Gauja Magnúsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.

Gunnar Axel Axelsson tók þá til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd, Gunnar Axel Axelssn kom einnig að suttri athugasemd. Geir Jónsson kom einnig að andsvari.

Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók síðan til máls og lagði fram eftirfarandi viðaukatillögu:
"Jafnframt er bæjarráði falið að vinna að frekari útfærslu endurfjármögnunarinnar."

Valdimar Svavarsson kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom einnig að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Geir Jónsson kom einnig að andsvari.

Gert var fundarhlé.

Fundi var framhaldið kl. 20:50.

Bæjarstjóri tók þá til máls og lagði til að fundi yrði frestað til föstudagsins 21. mars nk, klukkan 16:30

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti að fresta fundi með 11 samhljóða atkvæðum.

Þegar fundi var fram haldið tók bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir til máls, þá Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvar, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd, Rósa Guðbjartsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson bar síðan af sér ámæli, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd.

Kristinn Andersen tók síðan til máls, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari, Kristinn Andersen svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Kristinn svaraði andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri atugasemd, Kristinn Andersen kom einnig að stuttri athugasemd.

Þá tók Ólafur Ingi Tómasson til máls, síðan Sigríður Björk Jónsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Sigríður Bjarkar Jónsdóttur, Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd,Sigríður Björk Jónsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd.

Geir Jónsson tók þessu næst til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari, Geir Jónsson svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Geir Jónsson svaraði andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd, Geir Jónsson kom einnig að stuttri athugasemd. Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom einnig að andsvari við ræðu Geirs Jónssonar, Geir Jónsson svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Geir Jónsson svaraði andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd.

Guðfinna Guðmundsdóttir tók þá til máls, síðan Valdimar Svavarsson, bæjarsjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við ræðu Valdimars Svavarssonar, Valdimar Svavarsson svaraði andsvari.

Lúðvík Geirsson tók þessu næst til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, jafnframt dró hún til baka tillögu bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins fyrr á fundinum um að vísa dagskrárliðnum aftur til bæjarráðs, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd, Lúðvík Geirsson kom einnig að stuttri athugasemd.

Gert var stutt fundarhlé og var síðan gengið til afgreiðslu. Óskað var eftir nafnakalli.

Rósa Guðbjartsdóttir situr hjá
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir segir já
Gunnar Axel Axelsson segir já
Kristinn Andersen situr hjá
Geir Jónsson situr hjá
Sigríður Björk Jónsdóttir segir já
Lúðvík Geirsson segir já
Ólafur Ingi Tómason situr hjá
Guðfinna Guðmundsdóttir segir já
Valdimar Svavarsson situr hjá
Margrét Gauja Magnúsdóttir segir já

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir þannig með 6 atkvæðum að taka lán hjá Íslandsbanka hf. fyrir Hafnarfjarðarhöfn allt að 1 milljarður króna til allt að 20 ára sbr. tilboð bankans dagsett 10.mars 2014. Tilgangur lánsins er endurfjármögnun erlends láns við FMS.

Jafnframt er bæjarstjóra, Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, kt.121066-4919 ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamninga við Íslandsbanka hf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir þannig með 6 atkvæðum að taka lán hjá Íslandsbanka hf. allt að 12,1 milljarð króna til allt að 30 ára sbr. tilboð bankans dagsett 12.mars 2014. Tilgangur lánsins er endurfjármögnun erlends láns við FMS fjármögnun yfirdráttar og útistandandi skammtímaskulda.

Jafnframt er bæjarstjóra, Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, kt.121066-4919 ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamninga við Íslandsbanka hf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Eftirfarandi viðaukatillaga sem áður var kynnt tekin til afgreiðslu:
"Jafnframt er bæjarráði falið að vinna að frekari útfærslu endurfjármögnunarinnar."

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi viðaukatillögu með 11 atkvæðum.

Gunnar Axel Axelsson lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs:
"Í þeim samningum sem gerðir voru við erlenda lánadrottna í árslok 2011 tókst með tímabundinni lánafyrirgreiðslu að skapa nauðsynlegar forsendur og dýrmætt svigrúm til að leggja drög að hagstæðari langtímafjármögnun sveitarfélagsins innanlands. Tíminn hefur verið vel nýttur og markvisst hefur verið unnið að því að styrkja rekstrarforsendur sveitarfélagsins samhliða því sem undirbúningur að endurfjármögnun hefur farið fram.

Árangur hagræðingaraðgerða auk hagstæðari skilyrða í ytra umhverfi hafa orðið til þess að Hafnarfjörður getur nú endurfjármagnað erlendar skuldir að fullu á innlendum markaði og er lánsloforð Íslandsbanka mikilvægur áfangi í því ferli. Möguleiki er að nýta til þess ólíka fjármögnunarkosti sem taka mið af kjörum og aðstæðum á hverjum tíma, meðal annars skuldabréfaútboð og fyrirgreiðslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Með þessu er staðfestur sá árangur sem náðst hefur á síðustu árum, greiðslubyrði lána mun lækka og svigrúm til nýrra og breyttra tækifæra eykst verulega.
Þessi árangur er sömuleiðis staðfestur í nýju lánshæfismati en umrætt tilboð og sú viðurkenning sem í því felst er ein af grundvallarforsendum þess að Hafnarfjarðarbær nú skráður í lánshæfisflokk i.BBB1 með stöðugum horfum, sem er sama flokkun og m.a. Arion Banki og Kópavogsbær hafa nýlega hlotið.

Með þessu er verið að stíga fyrsta skrefið í því að ljúka endurjármögnun bæjarins, mikilvægt er að ganga frá þessum áfanga hið fyrsta svo bæjarstjórnin öll geti komið saman að lokafrágangi málsins á næstu vikum.
Eins og fram kemur í tilboðinu er Hafnarfjarðarbær ekki skuldbundinn til að nýta lánsloforð Íslandsbanka til fulls heldur getur fjármögnun bæjarins orðið með fjölbreyttari hætti, t.d. með þátttöku Lánasjóðs sveitarfélaga (LSS) og með sölu skuldabréfa til lífeyrissjóða. Afgreiðsla tilboðsins er því fyrst og fremst mikilvægur liður í þeirri vinnu sem nú stendur yfir og framundan er. Í framhaldi af samþykkt tilboðsins um aðkomu Íslandsbanka að endurfjármögnun langtímaskulda er bæjarráði falin endanleg útfærsla samnings þar um."
Gunnar Axel Axelsson
Guðfinna Guðmundsdóttir
Sigríður Björk Jónsdóttir
Lúðvík Geirsson
Margrét Gauja Magnúsdóttir
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir

Rósa Guðbjartsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því tækifæri sem felst í þessu tilboði en sitja hjá við afgreiðsluna vegna takmarkaðrar aðkomu við undirbúning málsins og óvissu um framhald þess og útfærslu. Jafnframt lýsa þeir sig reiðubúna til að koma frekar að framhaldi málsins með beinum hætti.

Greinargerð:
Fyrirhuguð endurfjármögnun gengur út á að framlengja í lánum sem hlaðist hafa upp á undanförnum árum í valdatíð vinstri manna. Skuldir bæjarfélagsins standa í um 40 milljörðum króna eða 1,6 milljón króna á hvern íbúa og endurfjármögnun mun ekki breyta þeirri stöðu. Þar af er um 10 milljarða króna lán hjá slitastjórn Depfa en það hefur reynst bæjarfélaginu mjög kostnaðarsamt að semja við slitastjórnina með þeim hætti sem gert var í stað þess að leita leiða með lánadrottnum um að taka heildstætt á skuldavandanum til framtíðar.
Með fyrirliggjandi tilboði býður Íslandsbanki Hafnarfjarðarbæ að framlengja erlend lán með allt að 30 ára láni í verðtryggðum íslenskum krónum sem getur orðið til þess að minnka eða eyða gengisáhættu, en óvíst er um það meðan ekki liggur fyrir áætlun um endanlega fjármögnun og heimildir frá Seðlabanka til greiðslna til kröfuhafa erlendis.
Það er hins vegar til marks um batnandi stöðu á fjármálamörkuðum að Hafnarfjarðarbær skuli nú eiga kost á endurfjármögnun erlendra skulda sinna til að allt að 30 ára. Leiðir til ávöxtunar hérlendis eru ennþá takmarkaðar vegna gjaldeyrishafta og því hljóta bæjarfélög eins og Hafnarfjarðarbær að vera þar álitlegir kostir.

Það tilboð sem nú liggur fyrir um endurfjármögnun skulda bæjarins frá Íslandsbanka er um margt ágætt. Tilboðið minnkar óvissu um að geta fjármagnað lokagjalddaga um 10 milljarða króna láns frá FMS í lok ársins 2015 þó það eyði henni ekki sökum þess að enn er alls óvíst um stöðu krónunar á þeim tíma sem leyfi fæst til að greiða lánið upp, en óvíst er enn hvenær það mun liggja fyrir. Tilboðið býður jafnframt upp á þann sveigjanleika að geta leitað annarra fjármögnunarmöguleika samhliða. Það gefur tækifæri til betri kjara á fjármögnun bæjarins verði þau í boði. Vaxtakjör eru ásættanleg miðað við umfang endurfjármögnunarinnar og markaðsaðstæður þó svo að vaxtagreiðslur þyngist all nokkuð frá því sem nú er auk þess sem verðtrygging bætist við. Stífar kvaðir um að ná skuldahlutfalli verulega niður hafa áfram íþyngjandi áhrif á sveitarfélagið.

Í tilboðinu er einnig gert ráð fyrir því að skammtímaskuldir upp á 1500 milljónir séu endurfjármagnaðar. Þar er ekki um að ræða erlend lán heldur yfirdrátt og aðrar skammtímaskuldir sem eru dýrar fyrir bæjarfélagið. Að mati okkar sjálfstæðismanna er upplagt tækifæri fyrir bæinn að losna við þessar skammtímaskuldir með því að selja eignir og sýna meira aðhald í rekstri og fjárfestingum til skamms tíma í stað þess að endurfjármagna þær og lengja í þeim eins og hér er lagt upp með. Er það í fullkomnu samræmi við tillögur okkar sem lagðar voru fram við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014. Með því mætti lækka skuldir um liðlega 2 milljarða króna og spara jafnframt um 140 milljónir á ári í vexti og verðbætur. Tillögu í þá átt munu sjálfstæðismenn leggja fram síðar á þessum fundi.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fordæma hins vegar þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í aðdraganda og við afgreiðslu þessa máls. Það er óásættanlegt að mál af þessari stærðargráðu fái ekki lengri efnislega umfjöllun en raun ber vitni. Fulltrúum Sjálfstæðisflokksins var algjörlega haldið utan við endurfjármögnunarferlið og allan undirbúning þess. Þeim var síðan kynnt munnlega niðurstaðan á fundi bæjarráðs 13. mars sl. og fengu engin gögn í hendur um málið, hvorki fyrir hann né á fundinum sjálfum. Málinu var vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar og var sá fundur 19. mars eða sex dögum síðar. Eftir ítrekaðar óskir í kjölfar bæjarráðsfundar um að fá afhent gögn var það ekki fyrr en farið var í hart að fyrstu gögn voru send bæjarfulltrúum. Af framvindu málsins má ráða að embættismenn, ráðgjafar, erlendir sem innlendir, fulltrúar í ráðuneytum og auglýsingagerðarfólk hafi allir fengið meiri upplýsingar og gögn í hendur á undan kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Á það skal bent að kjörnir fulltrúar eiga skýlausan rétt á því að fá afhent öll gögn er varða þau mál sem eru til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. Einnig er mikill réttur þeirra til að fá málum frestað milli funda ef svo ber undir og engar málefnalegar ástæður hafa verið gegn því í þessu tilviki. Ítrekuðum óskum og tillögum um að fresta afgreiðslu þessa máls, til að bæjarfulltrúar gætu kynnt sér málið vandlega, hefur hins vegar jafnan verið hafnað. Sú synjun og málsmeðferð öll ber með sér valdníðslu og yfirgang af hálfu meirihluta í garð minnihluta bæjarstjórnar og gengur þvert gegn fjálglegum yfirlýsingum um samráð þegar það hefur hentað. Sá gríðarlegi þrýstingur sem var á að keyra málið í gegn á fáeinum dögum er óskiljanlegur en kannski skýrist að hluta þegar í ljós kom að viðamikið og kostnaðarsamt kynningarferli var farið af stað um kosti væntanlegrar fjármögnunar og það áður en málið hafði verið afgreitt úr bæjarstjórn.
Vert er að minna á að kjörnir bæjarfulltrúar bera að lokum einir ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins ? þeir eru hin eina og sanna stjórn bæjarfélagsins og eiga að sitja þar allir við sama borð, hvar í flokki sem þeir standa."
Rósa Guðbjartsdóttir
Valdimar Svavarsson
Kristinn Andersen
Geir Jónsson
Ólafur Ingi Tómasson