Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, deiliskipulag, íþróttasvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1731
1. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
10.liður úr fundargerð SBH frá 23.sept. sl. Tekið upp að nýju, erindi AÍH dags. 21. mars 2014 þar sem AÍH leggur inn tillögu vegna deiliskipulags fyrir akstursíþróttir við Krýsuvíkurveg. Erindinu var frestað til gildistöku nýs aðalskipulags. Lögð fram umhverfisskýrsla dags. x.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan ásamt umhverfisskýrslu verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki er talin þörf á að vinna skipulagslýsingu, þar sem allar forsendur liggja fyrir í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi akstursíþróttasvæðis AÍH við Krýsuvíkurveg ásamt umhverfisskýrslu verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.