Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, deiliskipulag, íþróttasvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1746
27. maí, 2015
Annað
Fyrirspurn
6.liður úr fundargerð SBH frá 19.maí sl. Tekið fyrir að nýju erindi AÍH dags. 21. mars 2014 þar sem AÍH leggur inn tillögu vegna deiliskipulags fyrir akstursíþróttir við Krýsuvíkurveg. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu var send í auglýsingu og lauk athugasemdarfresti 24. nóvember sl. Athugasemdir bárust. Áður lögð fram samantekt Skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum og tillaga að svörum við þeim. Leiðrétt gögn hafa borist. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði hljóðskýrslu til umsagnar heilbrigðiseftirlits Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðis, sem gerir ekki athugasemdir við hljóðvistarskýrslu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að erindinu verði lokið skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag fyrir svæði fyrir akstursíþróttir við Krýsuvíkurveg og að erindinu verði lokið skv. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010"
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.