Aðalskipulag gatnamót við Straumsvík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1661
15. júní, 2011
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð SBH frá 7.júní sl. Tekin til umræðu tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 dags. 08.04.11 hvað varðar gatnamót við innkeyrsluna af Reykjanesbrautinn á lóð álversins. Lagt er til að gerð verði undirgöng fyrir vinstri beygjur. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti að farið yrði með tillöguna sem óverulega breytingu á aðalskipulagi, en mat Skipulagsstofnunar er að hér sé um verulega breytingu að ræða. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 16.05.11 og bréf Fornleifaverndar ríkisins dags. , svar við erindi Byggðasafns Hafnarfjarðar. Áður lagðar fram lýsing á verkefninu og umhverfismati áætlana skv. 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram umsögn skipulagsstofnunar dags. x. Kynningarfundur á tillögunni var haldinn 06.06.11. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að aðalskipulagstillagan og umhverfismat áætlunarinnar verði auglýst skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar gatnamót Reykjanesbrautar og Víkurgötu við Straumsvík og umhverfismat áætlunarinnar verði send í auglýsingu skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Fyrsti varaforseti, Valdimar Svavarsson, tók við fundarstjórn. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Forseti tók við fundarstjórn að nýju.

Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.