Strætó bs,ósk um uppsetningu á nýrri biðstöð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 277
21. júní, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Strætó bs dags 7. apríl 2011 varðandi ósk um nýja biðstöð við Ásvallalaug. Erindinu var visað til undirbúningshóps umferðarmála af fundi framkvæmdaráðs 27.04.11. Undirbúningshópurinn hafnaði erindinu þar sem stutt væri milli biðstöðva, en nýjar upplýsingar hafa borist frá Strætó bs. Fulltrúi Strætó bs Einar Kristjánsson mætti á fundinn.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í tillöguna og að hún fari inn á fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.