Hvaleyrarbraut 27.Umgengni á lóð.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Athugasemd er gerð við lóðarumgengi á Hvaleyrarbraut 27. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 30.06.2011 til eigenda að koma lóðinni í viðunandi horf. Lóðin hefur aftur færst í verra horf, m.a. netabunkar og gámar án stöðuleyfis. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 02.04.14 á ný til eigenda að koma lóðinni í viðunandi horf innan 4 vikna og sækja um stöðuleyfi fyrir gáma.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun beita dagsektum til að knýja á um umbætur skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 verði ekki brugðist við erindinu innan 3 vikna.