Drekavellir 4, byggingarstig
Drekavellir 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 392
11. janúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Húsið er á byggingastigi 4 en tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 14.04.11 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Komið hefur í ljós að byggingarstjóri skráði sig af verkinu árið 2008, en byggingu þess var lokið án þess að nýr byggingarstjóri væri skráður á verkið. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 09.03.11 eigendum skylt að ráða nýjan byggingarstjóra á verkið innan 4 vikna og sækja í framhaldi af því um lokaúttekt.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að bregðast við erindinu innan þriggja vikna. Verði það ekki gert mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197712 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075355