Straumsvík.breyting á byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 268
15. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Alcan Straumsvík sækir þann 28.01.2011 um að gera breytingu á byggingarleyfi skv málsnr. 1008012. Formi og umfangi þurrhreinsistöðvar breytt. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 09.02.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Gunnar Axel Axelsson víkur af fundi við afgreiðslu þessa erindis. Skipulags- og byggingarráð heimilar breytingu á byggingarleyfi enda telur ráðið að breytingin sé innan marka deiliskipulags svæðisins.