Vatnskarðsnámur í Grindavík, nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 268
15. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Grindavíkurbæjar að nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu við Vatnsskarðasnámur. Óskað er eftir umsögn Hafnarfjarðarbæjar. Tillagan er í auglýsingu og er athugasemdafrestur til 25. febrúar 2010. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs og framkvæmdasviðs að umsögn.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs og gerir að sinni, með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Þannig að áhersla verði lögð á að takmarka þungaflutninga í gegnum íbúðahverfi Hafnarfjarðar.