Lónsbraut 4.Ástandskoðun lóðar.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 376
14. september, 2011
Annað
Fyrirspurn
Víðir Ólafsson f.h. Rafspan ehf. mótmælir með bréfi dags. 9.9.2011 að óviðunandi ástand sé á þeim eignarhluta sem er þinglýstur á Rafspan ehf. á Lónsbraut 4.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að samkvæmt eignaskiptalýsingu sem samþykkt var 14. des.2004 þá er lóðin sameign allra og því á ábyrgð allra í húsfélaginu (hlutfallstala í lóð er í hlutfalli við heildareignahlut á lóð).