Aðalskipulag, Miðbær - Álfaskeið, breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1653
23. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
3. liður úr fundargerð SBH frá 15.febr. sl. Tekin fyrir tillaga sviðsstjóra um að vinna breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar lóðina Álfaskeið 16, lóð leikskólans Álfabergs. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr svæði fyrir þjónustustofnanir í íbúðarsvæði.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að aðalskipulaginu verði breytt samkvæmt tillögu sviðsstjóra og að farið verði með skipulagsbreytinguna samkvæmt 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 þannig að landnotkun lóðarinnar Álfaskeið 16, lóð leikskólans Álfabergs, verði breytt úr stofnanasvæði í íbúðarsvæði."
Svar

Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.