Fundargerðir 2011, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1660
1. júní, 2011
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 25.maí sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 17.maí sl. Fundargerð framkvæmdaráðs frá 25.maí sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 23. og 26.maí sl. Fundargerð bæjarráðs frá 26. maí sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 24.maí sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefnd frá 18.maí sl. c. Fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 24.maí sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.maí a. Fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrá 21 frá 17.maí sl.
Svar

Kristinn Andersen tók til  máls undir 1. lið - félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli - í fundargerð fræðsluráðs frá 26. maí sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Kristinn Andersen svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 1. lið - Vinnuskólinn - fundargerðar fjölskylduráðs 25. maí sl. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir 1. lið fundargerðar fjölskylduráðs frá 25. maí sl. og 8. lið - Hjallabraut 55, breyting á deiliskipulagi - í fundargerð bæjarráðs frá 26. maí sl. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls undir sama lið í fundargerð bæjarráðs.  Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðmundar Rúnars Árnasonar. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Fyrsti varaforseti, Valdimar Svavarsson tók við fundarstjórn. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðmundar Rúnars Árnasonar. Forseti tók við við fundarstjórn að nýju. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls undir fyrrgreindum lið í fundargerð bæjarráðs. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir sama lið. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls undir sama lið. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Fyrsti varaforseti, Valdimar Svavarsson, tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugsemd. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Kristinn Andersen vék af fundi kl. 15:42. Í hans stað mætti Ólafur Ingi Tómasson. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttir. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Geir Jónsson tók til máls undir 1. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 26. maí sl. Fyrsti varaforseti, Valdimar Svavarsson, tók við fundarstjórn. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Ólafur Ingi Tómasson tók til máls undir liðnum Styrkir í fundargerð bæjarráðs frá 26. maí sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Ólafs Inga Tómassonar.  Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Ólafs Inga Tómassonar.