Styrkir bæjarráðs 2011
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3289
28. apríl, 2011
Annað
‹ 6
7
Fyrirspurn
Teknar fyrir að nýju þær umsóknir sem óafgreiddar eru.
Svar

Bæjarráð samþykkir SAMAN-hópurinn fá styrk að upphæð kr. 50.000 sem takist af fjárveitingu bæjarráðs til styrkveitinga, bókhaldslið 21-815.
  Alþingi setti fyrst lög um orlof húsmæðra árið 1960 og gildandi lög eru frá 1972. Lögin voru sett í þeim anda sem ríkti þá og miðast við þjóðfélag þess tíma. Frumvarp til laga um afnám laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972 var lagt fram á 138. löggjafarþingi 2009 ? 2010 auk þess sem Jafnréttisstofa hefur svarað fyrirspurn Vestmannaeyjabæjar árið 2007 að hún teldi líkur á að lög um orlof húsmæðra teljist brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þá er bent á að lögin frá 1972 miða við hækkun vísitölu sem ekki er lengur til og reiknað framlag sveitarfélaga samkvæmt henn er óraunhæft. Ekki má gera lítið úr þeim félagslegu áhrifum sem orlofsferðir húsmæðra hafa haft fyrir þær konur sem þær hafa farið. Verði lögin afnumin geta orlofsnefndirnar haldið áfram að skipuleggja ferðir kjósi þær svo. Aðkoma sveitarfélaganna yrði valkvæð og það sem mestu máli skiptir, íbúum væri ekki mismunað á grundvelli kynferðis.Í dag þarf að leita allra leiða til að hagræða og forgangsraða fjármagni. Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið samþykkir bæjarráð Hafnarfjarðar að veita orlofsnefnd húsnæðra  hópstyrk að þessu sinni sem miðað við fjölda þátttakenda í ferð. Jafnfram verði leitað til Sambands íslenskra sveitarfélaga um að hafa forgöngu um endurskoðun á lögunum. Bæjarráð samþykkir að veita ferðanefnd eldri borgara sambærilegan hópstyrk á grundvelli upplýsinga um fjölda þátttakenda.