Blómvellir 4.Lokaúttekt ólokið.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 363
8. júní, 2011
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 22.12.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Lokaúttekt á Blómvöllum 4 er ólokið.Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 09.03.11 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Lokaúttekt er ólokið.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags. 23.06.11 kl. 13:30 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.