Klukkuvellir 7, byggingarstig
Klukkuvellir 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 473
14. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Klukkuvellir 7, sem er fjölbýlishús er skráð fokhelt, þó svo að fólk sé flutt inn. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 15.03.2012, en ekki var brugðist við því. Tölvupóstur barst 09.02.12 þar sem óskað var eftir fresti. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 08.08.12 byggingarstjóra skylt að sækja um öryggisúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010. Frestur var veittur til 01.11.12, en ekkert hefur síðan gerst í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Anton Kjartansson og sömu upphæð á eigendur frá og með 15.09.2013 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203988 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085613