Gjaldskrár 2011
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3295
11. ágúst, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram til staðfestingar svohljóðandi samþykkt fræðsluráðs frá 4. júlí sl.: "Hádegismatur í grunnskólum hækki úr 300 kr. í 350 kr. frá og með næsta skólaári. Matur og síðdegishressing í leikskólum hækki um 10% frá og með 1. ágúst nk. Fræðsluráð samþykkir að fresta ákvörðun um breytingu á vistgjöldum í leikskóla þar til fyrir liggur ákvörðum um jöfnun kostnaðar í leikskólum og hlut foreldra hjá dagforeldrum."
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir ákvörðun fræðsluráðs frá 4. júlí sl.

2 fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá með vísan til bókunar fulltrúa Sjálfstæðisflokks á fundi fræðsluráðs frá 4. júlí sl.