Strandgata 55,fyrirspurn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 265
4. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Fjörukráin leggur 09.12.10 inn fyrirspurn um að byggja torfhús fyrir aftan Fjörukrána sjá meðfylgjandi blað. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.12.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð telur hugmyndina áhugaverða, en að skoða þurfi uppbyggingu svæðisins í heild sinni. Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði og framkvæmdasviði að skoða hugmyndina nánar með hliðsjón af bílastæðum og í tengslum við skipulag miðbæjarins í heild sinni.