Stapahraun 11, byggingarstig og notkun
Stapahraun 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 410
23. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Stapahraun 11 mhl 02 eining 0103 er skráð á bst 4 mst 8, en hinar 2 einingarnar á bst/mst 7, það vantar lokaúttekt en byggingarárið er 2002. Húsið virðist fullbyggt og hefur verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 29.03.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra væri skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Byggingarstjóri brást ekki við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði 18.04.12 dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Pétur Helga Friðriksson, en athugasemd kom frá honum um að Guðmundur Leifsson væri byggingarstjóri.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi afturkallar dagsektir og boðar Guðmund Leifsson til lokaúttektar 04.06.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Minnt er á ábyrgð eiganda í þessu sambandi í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Sinni byggingarstjóri og eigendur ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122342 → skrá.is
Hnitnúmer: 10038539