Kirkjugarður stækkun til norðurs deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 302
26. júní, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju beiðni Kirkjugarðs Hafnarfjarðar um stækkun til norðurs á svæði milli Stekkjarkinnar og Reykjanesbrautar. Fulltrúi kirkjugarðanna Arnór Sigurðarson og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt mættu á fundinn og kynntu stöðu málsins.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur Skipulags- og byggingarsviði að undirbúa vinnslu á tillögu að deiliskipulagi svæðisins og taka saman lýsingu á verkefninu í samræmi við 1. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði tillaga að deiliskipulagi fyrir stækkun kirkjugarðs Hafnarfjarðar á svæði milli Stekkjarkinnar og Reykjanesbrautar og felur Skipulags- og byggingarsviði að taka saman lýsingu á verkefninu og undirbúa vinnslu á tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010."