Brekkutröð 3, byggingarstig og notkun
Brekkutröð 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 473
14. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Brekkutröð 3 er skráð á bst 4 og mst 8, þrátt fyrir að húsið virðist fullbyggt og hafi verið tekið í notkun. Við lokaúttekt kom í ljós að nánast allir eigendur eru búnir að gera ólögleg milliloft. Einnig vantar upp á brunavarnir í húsið. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 13.03.13 eigendum skylt að skila inn réttum uppdráttum af húsinu með samþykki Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins innan fjögurra vikna eða fjarlægja milliloftin að öðrum kosti. Yrði ekki brugðist við erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að skila inn réttum uppdráttum innan þriggja vikna og sækja um lokaúttekt innan sex vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.