Tjarnarvellir 11, byggingarstig og notkun
Tjarnarvellir 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 420
1. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 22.12.10 byggingarstjóra skylt að ljúka lokaúttektinni innan 4 vikna. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 23.06.11, en byggingartjóri sinnti ekki erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.01.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Nýjir eigendur, Miðengi, óska eftir fresti á greiðslu dagssekta meðan þeir skoða málið.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir að veita umbeðinn frest til 1. september n.k.