Tjarnarvellir 11, byggingarstig og notkun
Tjarnarvellir 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 501
12. mars, 2014
Annað
Fyrirspurn
Húsið hefur verið tekið í notkun án þess að lögboðin öryggisúttekt eða lokaúttekt hafi farið fram, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 22.12.10 byggingarstjóra skylt að ljúka lokaúttektinni innan 4 vikna. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 23.06.11, en byggingartjóri sinnti ekki erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.01.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Nýjir eigendur, Miðengi, óska eftir fresti á greiðslu dagssekta meðan þeir skoða málið. í viðtali 26.09.13 kom fram að verið væri að undirbúa umsókn um öryggisúttekt, en enn hefur ekkert gerst í því máli. Málið var ítrekað á síðasta fundi, en komið hefur í ljós að enginn byggingarstjóri er á húsinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að ráða byggingastjóra á húsið innan þriggja vikna, sem sæki um lokaúttekt innan þess tíma. Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 er ekki heimilt að taka mannvirki í notkun án þess að öryggisúttekt eða lokaúttekt hafi farið fram, og mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum sömu laga til að knýja fram úrbætur.