Tjarnarvellir 11, byggingarstig og notkun
Tjarnarvellir 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 363
8. júní, 2011
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 22.12.10 byggingarstjóra skylt að ljúka lokaúttektinni innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúí vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.Frestur var veittur til 15.02.11.Sjá meðfylgjandi athugasemdir.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags.23.06.11 kl. 16:30 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.