Álfhella 17, byggingarstig og notkun
Álfhella 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 408
9. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Álfhella 17, er skráð á bst/mst 4, fokheldi, það vantar lokaúttekt. Húsið hefur verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.2010 byggingarstjóra skylt að ljúka lokaúttekt innan þriggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar 01.06.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Minnt er á ábyrgð eiganda í þessu sambandi í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Sinni byggingarstjóri og eigendur ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 213449 → skrá.is
Hnitnúmer: 10096275