Álfhella 6, byggingarstig og notkun
Álfhella 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 515
18. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Álfhella 6 er skráð á bst. 2, mst 1, þrátt fyrir að vera fullbyggt hús og búið að taka í notkun. Um er að ræða brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010, 9. grein. Auk þess eru gámar og eldfim efni á lóðinni sem ekki er leyfi fyrir. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 15.08.13 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldisúttekt innan þriggja vikna og bendir jafnframt á ábyrgð eigenda skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010. Einnig sækja um leyfi fyrir gámum og eldfimum efnum álóðinni. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Frestur var veittur til 29.11.13, en ekkert hefur gerst í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Þórarin Kristján Ólafsson og sömu upphæð á eigendur RST net ehf frá og með 01.08.2014 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203354 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097632