Rauðhella 14, byggingarstig og notkun
Rauðhella 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 516
25. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Húsið er skráð á byggingarstigi 4, þótt það hafi verið tekið í notkun, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010, 9. grein. Lokaúttekt var framkvæmd 12.06.12, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarstjóri gerði 20.08.13 byggingarstjóra/eiganda skylt að boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundu áður boðaðar dagsektir koma í framkvæmd skv. 56 grein laga um mannvirki nr. 160/2010. Komið hefur í ljós að enginn byggingrstjóri er skráður á húsið.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að ráða byggingarstjóra á húsið sem boði til lokaúttektar innan 5 vikna. Verði ekki brugðist við erindinu mun skipulags- og byggignarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120049 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029148