Rauðhella 9, byggingarstig og notkun
Rauðhella 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 408
9. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á Rauðhellu 9 eru skráðar 7 eignir sem eru allar skráðar í bst 4 mst. 8, en allar teknar í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 27.03.2012 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra var skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Engin viðbrögð voru við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Guðmund Ragnar Guðmundsson frá og með 1. júlí 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 189966 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075978