Rauðhella 8, byggingarstig og notkun
Rauðhella 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 450
6. mars, 2013
Annað
Fyrirspurn
Á Rauðhellu 8 eru skráðar 3 eignir, sem eru skráðar í bst. 4 mst 8, nema 0103 sem er skráð bst 4 mst.7, allar teknar í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 26.03.2012. Byggingarstjóri var með útfyllta umsókn og ætlaði að fara í lokaúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 08.08.12 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi grípa til úrræða laga um mannviski nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Sótt var um breytingar á húsnæði 11.10.12, en frestað þar sem innsend gögn voru ófullkomin.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gefur eiganda frest til 01.04.13 til að skila inn leiðréttum gögnum og byggingarstjóra frest til 15.04.13 að sækja um lokaúttekt. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120586 → skrá.is
Hnitnúmer: 10031627