Fléttuvellir 1,breyting á deiliskipulagi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 267
1. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Míla ehf sækir þann 10.11.2010 um leyfi til að gera breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér að leyft verði að reisa 16 m hátt stálmastur við núverandi tækjahús Mílu ehf við Fléttuvelli 1. Áður lögð fram umsögn heilbrigðisfulltrúa Hafnarfjarðar- og Kópavóggsvæðis dags. 22.12.10, sem óskað var eftir. Tillagan er í auglýsingu skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Mílu Gunnar Ingimarsson og Jón Grétar Magnússon mættu á fundinn og svöruðu fyrirspurnum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar fulltrúum Mílu og felur sviðsstjóra að gera minnisblað.