Koparhella 1, takmarkað byggingarleyfi
Koparhella 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 260
2. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Steypustöðin Borg ehf sækir 26.10.2010 um takmarkað byggingarleyfi -sjá texta á afstöðumynd, teikningar samkvæmt Birni Gústafssyni dagsettar 26.10.2010. Um er að ræða leigulóð. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 27.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Þóroddur Skaptason tók sæti á fundinum að nýju.   Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veitt verði takmarkað byggingarleyfi fyrir þær framkvæmdir sem sótt er um og felur skipulags- og byggingarfulltrúa endanlega afgreiðslu þess. Skipulags- og byggingarráð óskar jafnframt eftir uppdrætti er sýnir fyrirhugað heildarfyrirkomulag lóðarinnar og felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda um breytingu á deiliskipulagi, sem unnin yrði af skipulags- og byggingarsviði.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 213031 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101076