Mannvirki og brunavarnir, frumvörp til umsagnar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 260
2. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Umhverfisnefndar Alþingis dags. 22.10.10 sem sendir til umsagnar frumvarp til laga um mannvirki, 78. mál, og frumvarp til laga um brunavarnir, 79. mál. Frumvörpin voru lögð fram og send til umsagnar á síðasta þingi en eru nú endurflutt óbreytt þar sem ekki náðist að afgreiða þau þá. Nefndin ákvað að senda þau aftur til umsagnar en umsagnir sem þá bárust eru gildar nema aðrar berist. Þeim umsagnaraðilum sem ekki sendu umsögn er nú gefinn kostur á að gera það. Lögð fram fyrri umsögn Hafnarfjarðarbæjar um lagafrumvörpin.
Þess er óskað að athugasemdir berist fyrir 5. nóvember nk.
Svar

Lagt fram.