Landspítali Hafnarfirði (St. Jósefsspítali-Sólvangur)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3280
20. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram eftirfarandi bókun: Bæjarráð Hafnarfjarðar skorar á velferðarráðherra að tryggja að áformuð sameining St Jósefsspítala og Landsspítala Háskólasjúkrahúss verði með þeim hætti að störf starfsfólks á St. Jósefsspítala og Sólvangi verði tryggð og að mikilvæg sérfræðiþekking og nauðsynleg þjónusta við bæjarbúa og stuðningur við almenna heilbrigðisþjónustu hverfi ekki úr Hafnarfirði.
Svar

Bæjarráð samþykkir bókunina.