Straumsvík, Gasfélagið, nýtt deiliskipulag
Straumsvík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1675
29. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð SBH frá 21.febr. sl. Gasfélagið ehf leggur 14.09.10 fram tillögu að deiliskipulagi, samkvæmt teikningum verkfræðistofunar Mannvits dags.09.09.2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag á áður ódeiliskipulögðu svæði. Skipulags- og byggingarráð óskaði 21.09.10 eftir umhverfismati áætlunar ásamt fylgigögnum þ.m.t. áhættumati, umsögn Brunamálastofnunar og Slökkviðliðs Höfuðborgarsvæðisins og Vinnueftirlits. Skipulags- og byggingarfulltrúi sendi fyrirspurn um málsmeðferð til Skipulagsstofnunar varðandi umhverfismat áætlunar. Lagt fram svarbréf Skipulagsstofnunar dags. 07.10.10 þar sem fram kemur að gasstöð í Straumsvík falli ekki undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Með tilvísan í 5. mgr. 9. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 telur Skipulagsstofnun Hafnarfjarðarbæ þó í fullum rétti að fara fram á að gerð verði grein fyrir áhrifum deiliskipulagsáætlunarinnar á umhverfi. Áður lögð fram öryggisúttekt Mannvits ehf. Lögð fram greinargerð Mannvits ehf um áhrif á umhverfi dags. 27.10.11, ásamt umsögnum Vinnueftirlits ríkisins dags. 14.10.11, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 21.10.11 og Mannvirkjastofnunar dags. 30.08.11. Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi dags. 08.02.12. Skipulags- og byggingarráð ákveður að senda deiliskipulagið í auglýsingu með fyrirvara um samþykki Hafnarstjórnar, og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýst verði tillaga að deiliskipulagi fyrir gasstöð í Straumsvík í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Eyjólfur Sæmundsson tók til máls og lýsti sig vanhæfan við afgreiðslu málsins. Forseti bar upp tillögu um að Eyjólfur viki sæti við meðferð málsins. Ekki voru gerðar athugasemdir af hálfu bæjarfulltrúa og taldist tillagan samþykkt.

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu frá skipulags- og byggingarráði með 10 samhljóða atkvæðum.