Krýsuvík, Seltún kvikmyndataka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 427
19. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Birgitta Björnsdóttir f.h. Zik Zak kvikmynda óskar eftir að fá leyfi til að taka upp stuttmynd í byrjun október í hálfan dag.
Svar

Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Krýsuvíkursvæðið er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd verður sérstaklega að gæta þessi að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum. Vakin skal athygli á að svæðið liggur við Seltún sem er mjög virkt sprengigíga- og borholusvæði. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessara auglýsingargerðar.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt að kvikmyndatöku lokinni og svæðið skilið eftir í viðunandi ástandi.