Hvaleyrarbraut dreifistöð HS-veitna
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 256
7. september, 2010
Annað
Fyrirspurn
HS-veitur óska eftir að staðsetja dreifistöð við vesturmörk lóðar Björgunarsveitar Hafnarfjarðar nr. 32 við Hvaleyrarbraut í samræmi við meðfylgjandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi dags. 18.06.2010. Skv. 23. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þurfa aðrir en landeigendur eða lóðarhafar leyfi sveitarstjórnar til að gera tillögu að deiliskipulagi. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 01.09.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til umsagnar hafnarstjórnar og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.