Sókn í atvinnumálum, átakshópur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1641
1. september, 2010
Annað
‹ 7
8
Svar

Valdimar Svavarsson tók til máls og lagði fram svohljóðandi tillögu f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks: "Sókn í atvinnumálum - Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hafin verði sókn í atvinnumálum í Hafnarfirði. Átakið verði samvinnuverkefni bæjarins, fyrirtækja í bænum og Vinnumálastofnunar.  Átakið er hvatningarátak og gengur út á að virkja þann kraft sem býr í bæjarbúum og fyrirtækjunum í Hafnarfirði til að fjölga atvinnutækifærum í bænum. Átakið er þríþætt: 1.       Kynning á Hafnarfirði, aðstöðu í bænum og kostum þess að reka fyrirtæki þar. Það verði m.a. gert með því að búa til kynningarefni og með því að senda markpóst á öll fyrirtæki í landinu þar sem þau eru hvött til þess að kynna sér kosti þess að byggja upp fyrirtæki í Hafnarfirði 2.       Sett verði upp tímabundið fyrirtækjaþjónusta á bæjarskrifstofunni sem heyri beint undir bæjarráð og hafi það hlutverk að vera tengiliður/þjónustufulltrúi við fyrirtæki í Hafnarfirði og þau fyrirtæki sem áhuga hafa á að setja upp starfsemi í bænum. Það safni saman gögnum og þekkingu frá öllum sviðum bæjarins sem hafa með þjónustu bæjarins við fyrirtæki að gera og hafi það markmið að greiða sem best götu fyrirtækja innan stjórnsýslunnar og veita fyrirtækjum sem besta og fljótasta afgreiðslu á sínum málefnum. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun starfsmanna bæjarins vegna verkefnisins heldur skal reynt að færa til starfsmenn til að sinna því. 3.       Haft verði samband við fyrirtækin í bænum, þeim kynntir kostir þeirra úrræða sem Vinnumálastofnun býður uppá og þau verði hvött til þess að nýta sér úrræðin með það að markmiði að fjölga störfum hjá fyrirtækjum í bænum. T.d. má horfa til hvernig Vinnumálastofnun  styður fyrirtæki og einstaklinga við átaksverkefni og reynsluráðningar. Skipaður verður vinnuhópur til að útfæra átakið nánar og tryggja að það komist í framkvæmd sem allra fyrst. Bæjarráð skipar 7 manna vinnuhóp sem skal skipaður 5 fulltrúum fyrirtækja í bænum og fulltrúum meiri- og minnihluta í bæjarstjórn. Vinnuhópurinn skal skila endanlegum tillögum til bæjarráðs eigi síðar en 7. október. Gert er ráð fyrir að kostnaður við átakið verði greiddur úr bæjarsjóði og með því að leita samstarfs við fyrirtæki í bænum um kynningarstarfið. Áætluðum markaðs- og kynningarkostnaði verði stillt í hóf og skal honum vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.  Framtíðarskipulagi atvinnumála og þjónustu við fyrirtækin í bænum skal vísað til þeirrar endurskoðunnar sem nú fer fram á skipulagi bæjarins og vinnu sem er í gangi vegna stofnunar Hafnarfjarðarstofu." Valdimar Svavarsson (sign) Rósa Guðbjartsdóttir (sign) Kristinn Andersen (sign) Geir Jónsson (sign) Helga Ingólfsdóttir (sign)  Bæjarstjóri, Guðmundur Rúnar Árnason, tók til máls. Þá Eyjólfur Sæmundsson. Þá Geir Jónsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Kristinn Andersen tók til máls. Þá Valdimar Svavarsson. Gunnar Axel Axelsson tók til máls og lagði til f.h. Samfylkingar og Vinstri grænna að tillögu um sókn í atvinnumálum yrði vísað til bæjarráðs til frekari yfirferðar og vinnslu. Var tillagan samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum. Guðmundur Rúnar Árnason tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna: "Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna fagna fram kominni tillögu um sókn í atvinnumálum. Nú þegar hefur verið unnið heilmikið starf á vegum bæjarins í tengslum við atvinnumál. Sett hefur verið á stofn atvinnu- og þróunarsetrið Deiglan, frumkvölðasetrið Kveikjan, Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar og ýmis átaksverkefni hafa verið og eru í gangi. Starfshópur er að vinna að undirbúningi að stofnun Hafnarfjarðarstofu. Markmið  með Hafnarfjarðarstofu er m.a. að styðja enn frekar við atvinnuþróun í Hafnarfirði og mun hópurinn skila fystu hugmyndum til bæjarráðs nú í september. Í lýðræðis- og stjórnsýslunefnd er einnig verið að vinna að mati og endurskoðun á stjórnkerfi bæjarins og þar á meðal litið til atvinnumála sérstaklega. Auk þessa hefur verið ákveðið að fara í kynningarátak, með aðkomu Vinnumálastofnunar, á þeim atvinnuátaksverkefnum sem standa fyrirtækjum til boða með gerð bæklings sem sendur verður til 1000 fyrirtækja í Hafnarfirði ásamt kynningarbréfi. Eins og sjá má er nú þegar verið að vinna að alhliða sókn í atvinnumálum á vegum Hafnarfjarðarbæjar þar sem unnið er að atvinnumálum í víðasta skilningi þess orðs."   Guðmundur Rúnar Árnason (sign) Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign) Lúðvík Geirsson (sign) Gunnar Axel Axelsson (sign) Eyjólfur Sæmundsson (sign) Sigríður Björk Jónsdóttir (sign)