Barnaskóli Hjallastefnunnar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1650
12. janúar, 2011
Annað
‹ 7
8
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð FRÆH frá 3.jan. sl. Lagt fram minnisblað frá Ólafi Helga Árnasyni varðandi stöðuleyfi húsnæðis Barnaskólans. Lögð fram eftirfarandi tillaga til bæjarstjórnar: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir, með vísan til afgreiðslu fræðsluráðs á fundi sínum þann 13. desember sl., að húsnæði það sem nú hýsir Barnaskóla Hjallastefnunnar við Hjallabraut verði flutt á grunn leikskólalóðar við Bjarkavelli og nýtt þar sem útibú leikskóla Hraunvallaskóla frá og með næsta skólaári þ.e. frá og með 1. ágúst 2011. Framkvæmdasviði verði falið að segja húsnæðinu upp með eðlilegum fyrirvara, sækja um byggingaleyfi á nýjum stað og undirbúa flutning húsanna ásamt öðrum framkvæmdum því tengdu."
Tillagan var samþykkt með þremur atkvæðum, fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá og vísa til bókunar sinnar frá síðasta fundi fræðsluráðs.
Svar

Dagskrárliðir nr. 4. og 5. teknir til umræðu og afgreiðslu sameiginlega.   Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Þá tók Kristinn Andersen til máls. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Kristinn Andersen svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen svaraði andsvari öðru sinni. Fyrsti varaforseti, Valdimar Svavarsson, tók við fundarstjórn. Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Helga Ingólfsdóttir tók til máls. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Kristinn Andersen kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Fyrsti varaforseti tók við fundarstjórn. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðfinna Guðmundsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðfinna Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðfinna Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen tók til máls. Þá Geir Jónsson. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Geir Jónsson svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Geir Jónsson svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Geirs Jónssonar. Guðfinna Guðmundsdóttir tók til máls. Kristinn Andersen kom að andsvari. Guðfinna Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Guðfinnu Guðmundsdóttur. Lúðvík Geirsson tók til máls. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi breytingartillögu ásamt greinargerð f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks: "Bæjarstjórn dragi til baka áform um að taka núverandi  húsnæði Barnaskóla Hjallastefnunnar til annarra nota og flytja lausar kennslustofur skólans  frá Hjallabraut að Bjarkavöllum. Leitað verði annarra leiða til lausnar húsnæðismálum leik-og grunnskóla í Vallahverfi og lögð áhersla á að nýta betur annað húsnæði í eigu bæjarins í því skyni.   Greinargerð Í framkvæmdaáætlun framkvæmdasviðs kemur fram að hugsanlegur flutningur á kennslustofunum og framkvæmdir á lóðinni við Bjarkavelli muni kosta samtals yfir 90 milljónir króna.  Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu bæjarfélagsins er það mat bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að ekkert svigrúm sé til framkvæmdar sem þessarar. Í ljósi húsnæðisvanda leik- og grunnskólans á Völlum er lagt  til að hafin verði  sem fyrst leit að húsnæði sem nýta má tímabundið undir kennslu, t.d. fyrir elstu bekki grunnskólans. Litið verði í því sambandi sérstaklega til félagsaðstöðu eða samkomusala í íþróttamannvirkjum á Ásvöllum, (Haukahússins og Ásvallalaugar), eða til þeirra skólastofnana bæjarins þar sem börnum fer fækkandi.  Þannig verði hægt að komast hjá kostnaðarsömum framkvæmdum að sinni og fjármunir bæjarins nýttir á öðrum stöðum.  Um leið yrði Barnaskóla Hjallastefnunnar nú leigðar kennslustofurnar á Hjallabrautinni og yrði um umtalsverðar leigutekjur fyrir bæinn að ræða, eða um 6 milljónir króna á ári. Á tímum niðurskurðar er mikilvægt að gæta vel að fjármunum bæjarfélagsins, leggja megináherslu á að verja sem kostur er innra starf grunn- og leiksskóla og nýta það húsnæði sem bærinn hefur nú þegar yfir að ráða á sem hagkvæmastan hátt."   Valdimar Svavarsson (sign) Rósa Guðbjartsdóttir (sign) Kristinn Andersen (sign) Geir Jónsson (sign) Helga Ingólfsdóttir (sign)     Þá tók til máls Jóhanna Marín Jónsdóttir. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Jóhanna Marín Jónsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar.   Gengið til atkvæðagreiðslu um framlagða breytingartillögu. Var hún felld með 6 atkvæðum. 5 greiddu atkvæði með tillögunni.   Guðfinna Guðmundsdóttir tók til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu.    Gengið til atkvæðagreiðslu um framlagða tillögu úr fundargerð fræðsluráðs frá 3. janúar sl. Var hún samþykkt með 6 atkvæðum, 5 á móti.   Helga Ingólfsdóttir tók til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu.   Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks: "Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma þá ákvörðun sem meirihluti bæjarstjórnar hefur tekið, að segja Barnaskóla Hjallastefnunnar upp húsnæði sínu og gera það að bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskóla.  Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður yfir 90 milljónir króna og að auki mun bæjarfélagið verða af mánaðarlegum leigutekjum frá Hjallastefnunni að upphæð hálfri milljón króna. Á tímum þegar munar um öll útgjöld, og álögur eru auknar á bæjarbúa, er harmað að ekki skuli hafa verið grandskoðaðar fleiri leiðir til lausnar húsnæðismála skólanna og í samráði þeirra sem málið varðar.  Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vildu fresta málinu milli funda og reyna að finna sameiginlega lausn á því en því var hafnað hér á þessum fundi og meirihlutinn nýtti sér vald sitt og keyrði málið í gegn. Hvar er margumrætt samráð meirihlutans nú?"   Valdimar Svavarsson (sign) Rósa Guðbjartsdóttir (sign) Kristinn Andersen (sign) Geir Jónsson (sign) Helga Ingólfsdóttir (sign)   Gunnar Axel Axelsson tók til máls og kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna: "Kostnaðaráætlun Framkvæmdasviðs bæjarins vegna flutnings á færanlegum kennslustofum frá Hjallabraut að Bjarkarvöllum hljóðar uppá 20,9 milljónir króna. Þessar upplýsingar eiga að vera aðgengilegar öllum kjörnum fulltrúum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Samhliða flutningi húsanna er áætlað að halda áfram framkvæmdum við nýjan leikskóla á Bjarkarvöllum sem ætlunin er að taka í gagnið á næstu árum. Reiknað er með að þær framkvæmdir sem ætlunin er að fara í og hægt verður að nýta í tengslum við hinar lausu kennslustofur kosti á bilinu 65-70 milljónir króna og leitað verður allra leiða til að lækka þann kostnað sem frekast er unnt. Hafa ber í huga að þar erum að ræða framtíðarfjárfestingu, ekki kostnað sem tilfellur vegna áætlanna um flutning og standsetningar færanlegs kennslurýmis. Þeir sem standa að rekstri Hjallaskólans hafa átt í uppbyggilegum samskiptum við bæði starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar og kjörna fulltrúa á undanförnum vikum og mánuðum, í þeim tilgangi að finna góða lausn sem innifelur að hægt verði að tryggja bæði leikskólabörnum í Vallarhverfi og grunnskólabörnum Hjallaskólans viðunandi húsnæði til framtíðar. Lausnin felst í samvinnu og vilja til að leiða málið til farsælla lykta.  Á það hefur meirihlutinn lagt áherslu og mun gera það áfram." Eyjólfur Sæmundsson (sign) Gunnar Axel Axelsson (sign) Lúðvík Geirsson (sign) Jóhanna Marín Jónsdóttir (sign) Guðfinna Guðmundsdóttir (sign) Sigríður Björk Jónsdóttir (sign)