Norðurhella 8, byggingarstig og notkun.
Norðurhella 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 515
18. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 4, fokhelt þótt það sé fullbyggt og hafi fyrir löngu verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði byggingarstjóra 12.02.14 skylt að sækja um lokaúttekt innan tveggja vikna. Jafnframt er minnt á ábyrgð eigenda samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010.Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Reyni Kristjánsson og sömu upphæð á eigendur Norðurhellu 8 ehf frá og með 01.08.14 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204721 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092977