Norðurhella 8, byggingarstig og notkun.
Norðurhella 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 259
19. október, 2010
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur fyrirspurn frá heibriðgðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis varðandi samþykkta notkun. Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 2(undirstöður) þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun. Fokheldis og lokaúttekt hefur ekki farið fram. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.08.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldi og lokaúttekt innan þriggja vikna. Yrði það ekki gert yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 13.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldi og lokaúttekt innan þriggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir kr. 20 þús.kr á dag skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldi og lokaúttekt innan þriggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir kr. 20 þús.kr á dag skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204721 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092977