Breiðvangur 63, girðing
Breiðvangur 63
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 255
24. ágúst, 2010
Annað
Fyrirspurn
Eigendur Breiðvangs 65 kvarta yfir girðingu umhverfis Breiðvang 63, sem nær fullri hæð allt að þeirra lóðamörkum. Segja eiganda Breiðvangs 63 einnig ætla að reisa girðinu milli lóðanna án þeirra samþykkis. Með bréfi dags. 4. ágúst 2010 óska Jón Holbergsson og Sigurborg Pétursdóttir eftir að erindið verði tekið upp að nýju. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 11.08.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð bendir á grein 67.1 í byggingarreglugerð: "Leita skal samþykkis byggingarnefndar á gerð og frágangi girðingar ef hún er hærri en 1,80 m eða nær lóðarmörkum en sem svarar hæð hennar, mælt frá jarðvegshæð við girðinguna eða frá hæð lóðar á lóðamörkum ef hún er meiri. Girðing á mörkum lóða er háð samþykki beggja lóðarhafa." Girðing umhverfis Breiðvang 63 er því án heimildar, og ber eiganda að sækja um leyfi fyrir henni eða fjarlægja að öðrum kosti. Með umsókn skal fylgja skriflegt leyfi frá lóðarhöfum þeirra lóða sem girðingin liggur að. Skipulags- og byggingarráð gefur lóðarhafa Breiðvangs 63 fjórar vikur til að bregðast við erindinu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120171 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029950