Aðalskipulag Hafnarfjarðar, heildarendurskoðun til ársins 2025.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1724
30. apríl, 2014
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð SBH frá 28.apríl sl. Tekin til umræðu tillaga að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, greinargerð, uppdrættir og umhverfisskýrsla. Skipulagið var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, athugasemdir bárust. Áður lagðar fram innkomnar athugasemdir. Lögð fram samantekt sviðsstjóra á þeim með tillögu að svörum.
Skipulags- og byggingarráð gerir svör sviðsstjóra að sínum, samþykkir aðalskipulagstillöguna og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025 ásamt fylgiskjölum og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010".
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls, þá Ólafur Ingi Tómasson, síðan bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, þá Rósa Guðbjartsdóttir, þessu næst Gunnar Axel Axelsson.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025.

Sigríður Björk Jónsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun f. h. allrar bæjarfulltrúa:
Aðalskipulag er í eðli sínu stefnumótun sem er bindandi fyrir aðrar skipulagsákvarðanir og stýrir heildaruppbyggingu í sveitarfélaginu til langs tíma. Sú tillaga sem hér er lögð fram til samþykktar hefur fengið ítarlega umfjöllun og kynningu á undanförnum misserum bæði innan stjórnsýslu bæjarins sem og annarra hagsmunaðaðila, ekki síst íbúa. Helstu áhersluatriði aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013 ? 2025 eru umhverfismál, samgöngur og húsverndun.
Í þeirri undirbúningsvinnu sem hefur staðið yfir síðastliðin 3 ár, þá hefur verið haft að leiðarljósi að setja fram áætlun um framkvæmdir og uppbyggingu sem líklegt má telja að eigi sér stað á þeim gildistíma sem um ræðir eða á árunum 2013-2025.
Í aðalskipulaginu eru auknar áherslur á sjálfbæra þróun og verndun byggðar, vistkerfis og náttúru. Hafnarfjörður státar af tiltölulega mörgum gömlum íbúðarhúsum sem ljá eldri bæjarhlutum hlýlegan blæ endurspegla þróun bæjarins allt frá upphafi. Í aðalskipulaginu er kveðið á um verndun yfirbragðs heillegra húsaraða og hverfa sem bera stílbrigði ákveðinna tímabila í byggingarsögu bæjarins. Í nýjum hverfum er áhersla á umhverfisgæði, og meðal annars er gefið rúm fyrir svo nefnt visthverfi í einu þeirra, þar sem fólk getur stundað vistvænan búskap. Lögð er áhersla á vistvænt samgöngukerfi með aukinni áherslu á göngu- og hjólastíga og almenningssamgöngur.
"Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025 er gott dæmi um verkefni sem unnist hefur þvert á pólitískar línur, enda er aðalskipulag í eðli sínu langtímastefna bæjarfélagins um uppbyggingu og þróun. Aðalskipulag þarf að endurspegla samfélagsgerð og áherslur á hverjum tíma en um leið er afar mikilvægt að íbúar geti treyst því að skipulag standi í öllum grundvallaratriðum og að hægt sé að vinna raunhæfar áætlanir um bæði uppbyggingu húsnæðis fyrir fólk og fyrirtæki.
Með aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 hefur verið mörkuð skýr stefna varðandi þróun og uppbyggingu bæjarins til langs tíma. Það er mikilvægur leiðarvísir í því að halda áfram að byggja upp gott samfélag fyrir okkur öll."