Aðalskipulag Hafnarfjarðar, heildarendurskoðun til ársins 2025.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 290
10. janúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Fyrir liggur samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að hefja vinnuna. Endurskoða skal uppdrætti og greinargerðir gildandi aðalskipulags og hafa niðurstöður úr rammaskipulögum Hamraness, Áslands og upplands Hafnarfjarðar til viðmiðunar. Áður lögð fram greinargerð með tillögunni af hálfu formanns. Áður lögð fram tillaga sviðsstjóra að verkefnislýsingu. Lagt fram erindisbréf fyrir starfshópinn.
Svar

Meirihluti skipulags- og byggingarráðs tilnefnir formann ráðsins og Sigurberg Árnason sem fulltrúa í stýrihópinn. Ólafur Ingi Tómasson verður fulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Erindisbréf er samþykkt með áorðnum breytingum.