Aðalskipulag Hafnarfjarðar, heildarendurskoðun til ársins 2025.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 293
21. febrúar, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin til umræðu heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Fyrir liggur samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að hefja vinnuna. Endurskoða skal uppdrætti og greinargerðir gildandi aðalskipulags og hafa niðurstöður úr rammaskipulögum Hamraness, Áslands og upplands Hafnarfjarðar til viðmiðunar. Áður lögð fram greinargerð með tillögunni af hálfu formanns. Áður lagt fram erindisbréf fyrir starfshóp sem hafa skal umsjón með verkefninu. Lögð fram tillaga starfshópsins að verkefnislýsingu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að leggja verkefnislýsinguna fyrir bæjarstjórn og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnið verði að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 í samræmi við fyrirliggjandi verkefnislýsingu."