Brekkugata 26, kjallaragluggi
Brekkugata 26
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 360
18. maí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Áður lagt fram bréf Björgvins Þórðarsonar hdl f.h. Jóhanns Inga Sigurðssonar og Tinnu Rósar Guðmundsdóttur Brekkugötu 26, þar sem þau óskuðu eftir afstöðu byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar til þess að glugginn fái að vera í óbreyttu ástandi, þ.e. vera opnanlegur eins og hann nú er. Skipulags- og byggingarfulltrúi tók neikvætt í erindið, þar sem það samræmdist ekki samþykktum teikningum, sem gera ráð fyrir minni gluggum með ísteyptum glersteini af eldvarnarástæðum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að færa gluggana í það horf sem samþykktar teikningar sýna innan 2 mánaða.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120194 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029980