Hvaleyrarbraut 35, breyting á iðnaðarhúsnæði, byggingarleyfi
Hvaleyrarbraut 35
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
22. júní, 2010
Annað
Fyrirspurn
Okt ehf sækir þann 10.06.2010 um leyfi til að breyta iðnaðarhúsnæði mhl 0201 í húsvarðaríbúð. Einnig skipta mhl 0202 í tvo hluta samkvæmt teikningum Sveins Ívarssonar br. 15. maí 2010. Meðfylgjandi er samþykki nágranna. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 16.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu með tilvísan í gr. 4.7.2 í skipulagsreglugerð þar sem skýrt kemur fram að íbúðir eru ekki heimilar á iðnaðarsvæðum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121121 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033450