Eskivellir 3, lokaúttekt
Eskivellir 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 264
14. desember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekinn fyrir að nýju tölvupóstur frá Páli Viggó Bjarnasyni f.h. húsfélagsins Eskivöllum 3 dags. 16.05.10 þar sem óskað er eftir að fram fari lokaúttekt á húsinu eins fljótt og auðið er. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 16.05.10 byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan tveggja vikna frá dagsetningu fundarins 19.05.2010 í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð eða gera grein fyrir málinu innan þess tíma. Ekki var brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 08.12.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan tveggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Verði ekki brugðist við málinu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan tveggja vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Verði ekki brugðist við málinu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 195183 → skrá.is
Hnitnúmer: 10091898