Eskivellir 3, lokaúttekt
Eskivellir 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 438
5. desember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Málið snýst um hver sé með réttu byggingarstjóri á byggingunni. Ágúst Pétursson skráði sig af verki þegar framkvæmdum var lokið og Anton Kjartansson skrifaði undir samþykki nýs byggingarstjóra. Stöðuúttekt/lokaúttekt fór ekki fram skv. 1. mgr. 36. gr. þágildandi byggingarreglugerðar nr. 441/1998: "Gera skal úttekt á þeim verkhluta sem lokið er og skulu fráfarandi og aðkomandi byggingarstjórar undirrita hana, ef þess er kostur, ásamt byggingarfulltrúa. Skipulags- og byggingarfulltrúi úrskurðaði 31.10.12 að Ágúst Pétursson væri byggingarstjóri þar sem stöðuúttekt hefði ekki farið fram, en unnt væri að skjóta málinu til Mannvirkjastofnunar skv. 18. grein laga um mannvirki nr. 123/2010. Lagður fram tölvupóstur frá lögfræðingi Mannvirkjastofnunar dags. 22.11.12 þar sem sett er fram það álit að Anton Kjartansson sé byggingarstjóri þrátt fyrir að stöðuúttekt hafi ekki farið fram. Enn fremur lögð fram upphafleg skráning byggingarstjóra á verkið, þar sem fram kemur að hann er þar skráður f.h. fyrirtækisins Verkþing.Tryggingarfélagið telur Anton vera byggingarstjóra, enda sé trygging hans enn í gildi.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi hlítir áliti Mannvirkjastofnunar. Í samræmi við það álit ber Anton Kjartanssyni að sækja um lokaúttekt á húsinu. Unnt er að skjóta máli þessu formlega til athugunar Mannvirkjastofnunar skv. 18. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 195183 → skrá.is
Hnitnúmer: 10091898