Vellir 5, Vellir 6, Ásland 3 og Skipalón, götukassar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1702
24. apríl, 2013
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð BÆJH frá 18.apríl sl. Lögð fram afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdaráðs á ofangreindu máli þar sem endurskoðaðri áætlun um steyptar stéttir á Völlum 6 og í Áslandi 3 er vísað til bæjarráðs. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi viðauka I við fjárhagsáætlun bæjarstjóðs 2013."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.